Skjástýringar
Skjástýringar til ýmisa nota
Velkominn, Innskráning
Skjástýringar tengdar iðntölvum eru í auknum mæli notaðar í bátum og skipum til hagræðingar.
-Með notendavænu viðmóti á snertiskjá er auðvelt að stjórna ljósum og tækjum eins og td. lensidælum, siglingaljósum, færiböndum, hitastýringu, fellikili ofl.
-Með skjástýringu er auðvelt að útbúa fullkomið viðvörunarkerfi fyrir eldviðvörun, vatn í olíu-, bilaða siglingaljósaperu, sjó í vélarúmi, þjófavörn ofl ofl.
-Skjástýring sparar mikið pláss í stjórnpanel í bátum þar sem margir rofar og ljós verða óþörf.
-Með iðntölvu og skjástýringu er auðvelt að mæta sérþörfum t.d. útbúa letingja á rúðuþurrkur, grúbba saman ljós og tæki til að kveikja og slökkva með einni snertingu.
-Hægt er að tengja myndavélar við skjáinn til að fylgjast með því ekki sést auðveldlega úr stjórnpúlti.
-Hægt er að tengja skynjara við skjástýrikerfið og útbúa mælaborð á skjáinn þar sem framm koma td. spenna og straumur á rafkerfi, hæðir í tönkum, olíueyðsla osfrv.
-Hægt er að útbúa margar "blaðsíður" á skjánum og fletta á milli, hafa t.d. ljósakveikingar á einni bls. myndavélar á annari bls, mælingar á þriðju osfrv.
-Hægt er að bæta öðrum skjá við iðntölvuna og fá þannig alla stjórn, upplýsingar og viðvaranir á fleiri en einn stað.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband í síma 461-1221 eða sendið tölvupóst á rafeyri@rafeyri.is
Engar athugasemdir
Aðeins innskráðir notendur geta skrifað athugasemdir